Saga orlofsnefndar



Árið 1954 hafði Ragnheiður Möller framsögu um lögfestingu orlofs húsmæðra á Norðurlöndum og lagði til að nefnd undirbyggi málið fyrir landsþing Kvenfélagasambands Íslands.  Lög um orlof húsmæðra voru sett á Alþingi 9. júní 196o sem voru endurskoðuð lög nr 53/1972. Meðal þeirra kvenna sem mest beittu sér fyrir orlofsmálinu voru Hallfríður Jónasdóttir og Herdís Ásgeirsdóttir.


Árið 1969 tók Steinunn Finnbogadóttir við af Herdísi Ásgeisdóttur í nefndinni og beitti sér fyrir samstarfi orlofsnefnda um  land  allt og var falið að sjá um endurskoðun laganna 1972.

Árið 1977 var skorað á Alþingi að fella niður fjárveitingu úr ríkissjóði og ætla sveitarsjóðum einum að veita til þess fé sem svo var samþykkt.




 

Flettingar í dag: 48
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 95
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 156322
Samtals gestir: 18553
Tölur uppfærðar: 24.5.2025 13:29:32